Innskráningar kubbur

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

nei hvađ haldiđi.......

23. september 2008 klukkan 20:31
Er maður ekki bara mættur til að blogga.
Er sem stendur stödd á hornafirði að vinna i slátuhúsinu. Er reyndar ekki búið að vera mikið að slátra upp á síðkastið en það fer að verða meira á næstunni.
Annars er ekki neitt þannin að frétta nema að ég stefni á nám í danmörku á næstu tveim árum. Langar geðveikt að fara út að læra hundasnyrti.

Jæja ætla að láta þetta nægja í bili blogga seinna og ef einhverjir skoða.
blessuð í bili
Elín Dögg Haraldsdóttir
1 athugasemd

Verđiđ ađ skođa

03. maí 2008 klukkan 15:02
Ég mana ykkur þetta er geðveikt finndið og pælið í því hvað fólki dettur í hug er það er eitt heima. Ætli nágrannar ykkar geri þetta líka. Maður spyr sig. En hér er þetta
http://mojoflix.com/Video/The-milkshake-dance.html


Hér er meira kannski mis finndið. 10 hver karlmaður er hommi http://www.b2.is/?sida=tengill&id=283039

ljón vs flóðhestur. http://www.b2.is/?sida=tengill&id=282803
Elín Dögg Haraldsdóttir
3 athugasemdir

Sjaldséđir eru hvitir hrafnar.....

02. maí 2008 klukkan 10:26
....Og ég hef ekki en séð neinn.
En allavegana þá kemur smá blogg hérna.
Veit reyndar ekkert um hvað ég að blogga. Er alltaf bara að vinna heima eða einhverstaðar að veltast með kærastanum mínum á milli verkstæða. já eða fæ verkefni því hann sér að mér á það til að leiðast uppi á verkstæði hjá honum. En það er mjög sjaldan.

En ég er sem stendur stödd á svanavatni hjá systur minni og fjölskyldu. Vorum í gær að marka lömb og rýga rollur. Svo í dag er ég að drepast úr harðsperrum eftir öll hlaupin á eftir rollu pussunum og að draga þærí rúgun.

Í dag á held ég að taka til frekar en að mála en það kemur í ljós er þau koma inn úr fjósinu.


En ég ætla ekki að hafa þetta neitt lengra núna.
veriði sæl.
Elín Dögg Haraldsdóttir
1 athugasemd

Jibbi

09. september 2007 klukkan 14:55
jæja gott fólk þá er ég loks komin með íbúð og farin að búa.
Þetta er geðvekt kósi og flott íbúð. Öll í parket pg eik að ég held þetta sé.
3 herbergja og á tveim hæðum. Klósett og 2 herbergi niðri og eldhús og stofa uppi.

Vildi bara deila þessu með ykkur. Er núna á svanavatni að náí dótið mitt til að setja inn i íbúðina:)
Elín Dögg Haraldsdóttir
6 athugasemdir

Ekki dauđ

30. ágúst 2007 klukkan 22:08

Jæja kemur smá blogg.
Er sem sé flutt í bæinn og farin að finna í Korninu í Borgartúni.
Og er orðin verslunarstjóri þar eftir 10 daga vinnu. Nokkuð gott að mér finnst. Er það ekki. En já það er búið að vera geðvikt mikið að gera. Búin að vera að vinna meira og minna frá hálf 6 á morgnana til hálf 7 á kvöldin. Okkur vantar svo starfsfólk því verslunarstjórin sem var er ég byrjaði er hættur og vantar manneskju í minn stað frá hálf 6 til hálf 2-2 og frá 2 til hálf 7. Svo ef ykkur vantar vinnu og langar að vinna í bakaríi endinlega hafið samband eða kikið til mín. Vantar reyndar einhvað í hinar 6 búðirnar lika af 8.
En já er sem sé en að leita mér að íbúð og svo hafa verið breyttar áætlanir litli frændi minn sem er að verða 17 ætlar að flytja í bæin og leigja með mér. Það verður örugglega fínt. Okkur semur alveg ágætlega saman.
En þið faið ekkert meira blogg núna læt heyra í mér seinn ae lofa ekki að það verði í brað. Læt ykkur allavegana vita er ég fæ íbúð.
Veriði þá sæl í bili.

ElínSvalur
Elín Dögg Haraldsdóttir
2 athugasemdir

Vá hvađ sumir geta átt meira bátt en ađrir.

20. júlí 2007 klukkan 10:11
Ég er skráð inn á tagget af einhverjum ástæðum. Alltaf að fá boðskort frá þeim sem eru inni á mailnum hjá mér svo ég áhvað að skrá mig.
Nei svo er ekkert nema sægó lið þarna inni.
Til að byrja með þá er ekki mynd af mér þarna inni en þessu gaur heldur að við séum sálufélagarÓákveðinn En já hérna kemur bréfið er hann sendi mér.

DEAR FRIEND HELO HOW ARE YOU? HOW IS GOING YOUR LIFE NOW A DAYS? AM JOHNN NOSHAD 29TH YR SINGLE DONE MBA FROM LONDON UNIVESTRY ENGLAND DOING BUSINESS IN KUALA LUMPUR CITY CAPITAL OF MALAYSIA. I HAV CARPET SHOWROOM,COLTH­ SUPRER STORE,COMPUTER­ SHOWROOM,ONE RESTORAN IN KL CITY. I HAV ONE ELDER SIS,BRO THEY R MARRIED NOW. ONE LITTLE SIS,BRO STUDY IN COLLEGE. IF YOU LIKE TELL ME ABOUT UR FAMILY. AM LOOKING ONLY SERIOUE RELATION SHIP. IF YOU LIKE TO ME SO PLS TELL ME THANKS. WE CAN MAKE OUR LIFE MORE SUCCEFULL AND BEATIFULL. I CAN GIVE U EVERYTHING IN YOUR LIFE BY HART AND LIFE WISH. UR TRUE LOVE AND LIFE PARTNER IS CALLING YOU. THIS IS ARYAN CAN I HAVE PLEASURE TO HAVE UR FRIENDSHIP? I M WAITING FOR UR DECISION PLEASE ADD ME Or Tell Me Yr Id. I PROMISE U I M SPECIAL WITH U BF PLEASE ADD ME . johnn_jills_bu­sinessman@yaho­o.co.uk johnn_noshad@h­otmail.com noshad_911@yah­oo.com I could send you a Red Rose to tell you of my love and respect for you. I could send you a Yellow Rose to let you know what joy your friendship brings me. I could send you a Pink Rose to thank you for being so kind to me. I could send you a White Rose to tell you just how much I like your simplicity and gentleness But instead. I am sending you a Blue Rose to tell you what a rare and unique person you are. And to let you know how special you are to me. Now a Days am in Malaysia capital city of kulam pur city. if you dont mind so pls call me? this time in Seremban2 city. pls call me coz am waithing your call. i want talks with me.if you dont mind you can tell me ur hand phone number i ill call you. i ill hope you will try to understand to me. will give to me answer soon. hav a nice day take care you Johnn Noshad

Elín Dögg Haraldsdóttir
5 athugasemdir

Rán um hábjartan dag!

18. júlí 2007 klukkan 21:03
Þetta er ótrúlegt. Já eins og ég sagði rán um hábjartan dag.
Að maður skuli þurfa að lifaá loftinu til að geta borgað leigu á þessu klaka.
Ein litil 49fm 3ja herb ibuð er á 130.000 þus á mánuði já og þau vilja 130.000 fyrirfram og aðra 130.000 i tryggingarvíxil. Hva halda allir að hinir skiti peningum því maður sjálfur gerir það ekki.
Annað dæmi þú getur fengið 55fm á 85.000 á mánuði en þá er ekki hiti og rafmagn innifalið. Og það er ekki einu sinni hakað við það að það sé eldavél i íbuðinni. Hva tók fiflið eldavélina með sér og heldur að hann geti leigt 3ja herbergja íbúð á eldavélar.
Já svo geturðu leigt einhverja LÚXUS PENTHOUSE-IBÚÐ sem er ekki nema 97fm og hún er á 300.000þús á mánuði. Ekki búin! 600.000 þús fyrirfram og tryggingu upp á 400.000 þús, Hva er þetta fyrir seðlabankastjóra eða einhverja aðila sem hafa fundið upp hvernin á að láta 5000. kallin vaxa á trjánum eða skíta helvítinu.
Þetta er ekki heilbrigt hvernin þetta er. Hvað með þá aðila sem hafa kannski ekki nema einhvern 100.000 þús á mán þá á eftir að borga það sem borga á og tala nú ekki um ef þau eru 3 í heildina einstætt foreldri með 2 börn.
Hvernin er hægt að lofa hverna.
Já ekki hætt. hvað um þá sem er öryrkjar ekki hafa þau nú mikið á milli handana hvort sem það er annað foreldirð eða bæði eins og í mínu tilviki. Ætla ekki út í þá sálma hér kemur seinna.
En getur einhver sagt mér hvernin þetta á að ganga upp.
Jújú læra einhvað sem gefur manni tekjur. En hvað með þá sem þurfa að borga námið sjálfir þá er eftir að lifa, borga það sem borga þarf. Ekki allir fæddir með sylfur skeið i kjaftinum.
Vá hvað ég er reið út í þetta land, þetta kerfi sem við lifum eftir.
Lækka skatta, hækka laun, lækka leigu. Ha og hvernin er það var ekki virðisuaka skatturinn af matvöru lækkaður um dagin svo það væri ódýrara fyrir landan að versla, nei viti menn ekki alstaðar hefur hann verið lækkaður og núna er hann bara að hækka aftur.
Fuckings kjaftæði, ha svo er talað um góðæri í landinu, ekki hef ég verið vör við það upp á síðkastið.
AAAAARRRRRRRGGGGGGGGGG!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Elín Dögg Haraldsdóttir
2 athugasemdir

Slys

25. júní 2007 klukkan 11:24
Það varð slys í gær á litla frænda mínum. Heyskapur á fullu og litla skinnið datt af pakkaranum og skelti hausnum í og datt i jörðina og vankaðist.
Til allra hamingju þá heyrðist i mági mínum er hann kallaði á hjálp og sjúkrabíl þar sem símasambandslaust var þarna. Maður í bústaðnum sem á túnið er verið var verið að heyja heyrði í þeim og hringdi.
Hann var fluttur með sjúkraflugi suður og í aðgerð.
Hann var með opið höfuðkúpubrot, og einhvað í sambandi við gagnaugað og augnbotnana.
En honum heilsast vel núna og allt lítur mjög vel út.
Hann var á gjörgæslu í nótt en verður sendur á barnadeildina í dag.

Sendi hér með baráttu kveðjur til 10 ára frænda míns og til foreldra hans sem eru skyljanlega búin að vera i rosalegu sjokki.
Elín Dögg Haraldsdóttir
1 athugasemd

beljur og meiri beljur

08. júní 2007 klukkan 10:04
jæja gott fólk.
Sveitalífið er ekki eins yndislegt og maðurinn heldur.
Er sem sé stödd í sveitinni eins og er að mygla.
já og er á leið í aðgerð þann 22 júni.
Er víst með rifinn liðþóa i vinstri fæti. (veit ekki hvernin á að skrifa þetta)

Já þarna sjáið þið hversu innihaldsríkt líf mitt er að það gerist ekkert og ekkert að skrifa um.

blessuð

ElínSvalur
Elín Dögg Haraldsdóttir
2 athugasemdir

Tilgangslaust

17. maí 2007 klukkan 14:10
Tilhvers er maður að blogga. Ok veit vel að ég er húðlöt við það.
En mér er alveg sama. Á mína tryggu aðdáendur og veit vel að ég kiki ekki oft inn á þeirra síður. Já Anna ef þú ert að lesa þetta þá vantar mig lykilorðið inn á síðuna þína.
Og engin kvittar i gestabokina. Er að spá i að hætta þessu bloggi bara. Er líka að fara að flytja í bæinn seinna i sumar eða haust svo ég verð ekkert með netið þá.

Nenni ekki að blogga meir.
Elín Dögg Haraldsdóttir
1 athugasemd